Sigurganga One Battle After Another, kvikmyndar Pauls Thomas Anderson, heldur áfram en hún var valin besta myndin á BAFTA-verðlaunahátíð bresku kvikmyndaakademíunnar í kvöld. Anderson hlaut verðlaun sem besti leikstjórinn. One Battle After Another var tilnefnd til þrettán verðlauna og hlaut alls sex, flest allra tilnefndra kvikmynda. Hann sagði í þakkarávarpi titilinn passa of vel við samtímann. „Heimurinn er bara orðinn eins og hver baráttan á fætur annarri, en verum vongóð,“ sagði Anderson. Í Lestinni var One Battle After Another lýst með þeim hætti að Leonardo DiCaprio fer með aðalhlutverkið, leikur jónureykjandi pabba í náttslopp, sem er örvæntingafullur að leita að dóttur sinni. Blóðsugumyndin Sinners hlaut þrenn verðlaun úr þrettán tilnefningum, meðal annars fyrir bestu tónlist og be