Umferð um veginn yfir Reynisfjall við Vík var opnaður aftur fyrr í kvöld eftir að flutningabíll sat þar fastur vegna bilunar. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er enn mikil vetrarfærð á veginum. Vegurinn var þjónustaður til klukkan tíu sem er um klukkustund lengur en vanalegt er. Vegna veðurs má búast við að færð spillist og geti orðið ófær. Víða eru hálkublettir á Suðurströndinni, krapi og skafrenningur er á Reynisfjalli. Mynd aðsend.