Það var mikið að gera í blómabúðum um allt land í dag enda konudagur og margir sem vildu gleðja sína heittelskuðu.Hefð hefur skapast fyrir því að menn gleðji konurnar í lífi sínu á konudaginn. Gjafir á borð við blóm eða sætindi verða oft fyrir valinu og á því var engin undantekning í dag.Magnús Stefán Sigurðsson keypti blóm fyrir eiginkonu sína og dóttur í tilefni dagsins. Stefán lét blómakaupin ekki duga heldur keypti hann einnig súkkulaði.Elísabet Jónsdóttir, eiginkona Stefáns, segir það dásamlegt að fá blóm á konudaginn, engar fastar konudagshefðir séu á heimilinu en að eiginmaður hennar geri yfirleitt eitthvað fyrir hana í tilefni dagsins.„Þetta er hlýtt í hjartað.“