Kauptilboð Reykjanesbæjar í hluta af lóð kísilversins í Helguvík hefur verið samþykkt af bæjarráði sveitarfélagsins. Á síðasta ári keypti byggingar- og þróunarfélagið Reykjanes Investment ehf. mannvirkið og lóðina og buðu sveitarfélaginu stóran hluta lóðarinnar til kaups. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir metnaðarfull áform um uppbyggingu á staðnum.„Sorgarsögu kísilversins í Helguvík þekkjum við hérna í Reykjanesbæ mjög vel en þegar verksmiðjan varð gjaldþrota á sínum tíma þá fór mannvirkið og lóðin sem hún stendur á í hendur dótturfélags Arion banka og hefur verið þar þangað til á síðasta ári. Þá keyptu einkaaðilar mannvirkið og lóðina og hyggjast þeir rífa mannvirkið og buðu sveitarfélaginu stóran hluta lóðarinnar til kaups.“Halldóra segir einhug hjá