Konudagurinn er í dag en hann er haldinn fyrsta sunnudag í Góu sem stendur í fjórar vikur. Á þessum degi er áralöng hefð að makar gefi konum sínum og kvár blóm eða litlar gjafir. Kristín Inga Arnardóttir eigandi Blóma og fiðrilda hefur tvöfaldað starfsmannafjöldann hjá sér í tilefni af deginum.