Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vaxandi sinueldur sem erfitt er að ráða við

Eldur kviknaði í sinu í Heiðmörk við Elliðavatn síðdegis. Upphaflega voru slökkviliðsmenn frá einni stöð sendir af stað til að slökkva eldinn en fljótlega kom í ljós að hann var að breiðast út og magnast. Því var bætt í mannskap og rétt fyrir klukkan fjögur voru nokkrir slökkviliðsbílar komnir á staðinn.Mikið hefur verið um sinuelda síðustu daga og vikur vegna mikilla þurrka sem hafa fylgt úrkomuleysi frá áramótum.Sinueldar hafa bæði verið raktir til þess að fólk hafi farið óvarlega og til þess að eldarnir hafi verið kveiktir vísvitandi.
Vaxandi sinueldur sem erfitt er að ráða við

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta