Rubin Karl Hackert hefur aldrei tjáð sig opinberlega um Bakkakot, og lítið farið í smáatriði við sína nánustu. Hann man líka lítið af smáatriðum. Hann dvaldi aðeins á Bakkakoti í fáeinar vikur þegar hann var sex ára gamall en honum finnst samt eins og hann muni atburði fyrir og eftir þennan tíma betur. Eins og hann hafi bælt Bakkakot niður. Tilfinningin gagnvart vistinni hefur þó alltaf verið skýr.„Flestar mínar kærustur [vissu] það að þegar ég [yrði] ákveðið gamall ætlaði ég að keyra niður í Bakkakot og „konfronta“ þessa Þóru skilurðu,“ segir Rubin. Af því varð þó aldrei.Rubin sagði sögu sína í þættinum Sögur úr raunveruleikanum á Rás 1:Móðir drengs sem dvaldi í Bakkakoti upplifir að hún hafi bjargað honum frá frekari skaða, en situr eftir með sára minningu um annan dreng sem reyndi að fl