Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ungverjar bæta í hótanir gegn Úkraínu

Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur bætt enn í hótanir gegn Úkraínu vegna olíuleiðslu sem liggur gegnum landið og færir Ungverjum og Slóvökum rússneska olíu. Engin olía hefur flætt þá leið í tæpan mánuð. Stjórnvöld í Kænugarði segja það vegna þess að leiðslan hafi skemmst mikið í loftárás Rússa.Ungverjar hótuðu fyrir helgi að stöðva lán ESB til Úkraínu nema opnað verði fyrir leiðsluna á ný, og Slóvakar segjast munu loka á neyðarraforku til Úkraínu.Í dag sagði Orban svo að Ungverjar myndu stöðva tuttugasta þvingunaraðgerðapakka ESB gegn Rússum nema olía flæði á ný. Aðgerðir ESB þurfa að vera samþykktar af öllum aðildarríkjum.AP/Pool AP / Alex Brandon
Ungverjar bæta í hótanir gegn Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta