Heyrnartól eru til margs brúkleg, við leik, störf, hvíld og líkamsrækt. Ný evrópsk rannsókn sýnir að skaðleg efni er að finna í hvers kyns heyrnartólum, óháð hver framleiðandinn er.Rannsókn samtakanna Tox Free leiðir í ljós að öll pör sem prófuð voru innihéldu efni sem eru skaðleg heilsunni, þar á meðal efni sem geta valdið krabbameini, hormónatruflunum og hægt á taugaþroska.Niðurstöðurnar sýna að dagleg notkun – sérstaklega við áreynslu þegar hiti og sviti eru til staðar – greiða leið skaðlegu efnanna í húðina.„Þessi efni eru ekki bara aukefni; þau gætu verið að flytjast frá heyrnartólunum inn í líkama okkar,“ segir Karolína Brabcová, efnafræðingur hjá ToxFree LIFE for All verkefninu. LANGTÍMAÁHRIF SKAÐLEGU EFNANNA ERU ÁHYGGJUEFNI Rannsakendur keyptu 81 par af heyrnartólum, annað hvort