Stjórnendur læknamiðstöðvarinnar Klíníkurinnar búast við að samstarfssamningur um móttöku sjúklinga frá Landspítalanum náist við heilbrigðisyfirvöld á næstu dögum. Framkvæmdastjóri segir að þegar hafi verið auglýst eftir heilbrigðisstarfsfólki. Hann finni fyrir miklum áhuga á verkefninu.