Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar hefur samþykkt að veita safnaðarstjórn kirkjunnar leyfi til að halda áfram með hugmyndavinnu sína um stækkun Selfosskirkju. Markmiðið er að greina og áætla þörf til næstu framtíðar og koma með tillögur þar um. Þá er verið að leita logandi ljósi að staðsetningu á nýjum kirkjugarði á Selfossi.