Rótin, félag um málefni fólks með fíknivanda, sendi áskorun til heilbrigðisráðherra fyrir helgi um að falla frá komugjöldum í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn hjá SÁÁ á Vogi.Framkvæmdastýra samtakanna sagði í hádegisfréttum í gær að fólk þyrfti að borga 17 þúsund fyrir komu og læknisviðtal sem væri ekki í samræmi við lágþröskulda þjónustu.Svala Jóhannesdóttir, formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, segir að þeirra skjólstæðingar upplifi það sama.„Það sem er kannski helsta áskorun okkar skjólstæðinga í Matthildarsamtökunum er þessi krafa um innlögn á Vog til þess að geta hafið meðferð ef staðfest ópíóíðafíknigreining er ekki til staðar. Það er ekki slík krafa í mörgum löndum í Evrópu,“ segir Svala.„Þetta gerir það að verkum að ákveðnir hópar upplifa ekki kannski greitt aðgengi að þess