Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mörg þúsund færri frá Bandaríkjunum

119 þúsund erlendir farþegar fóru frá Keflavíkurflugvelli í janúar, 2 prósent færri en í fyrra. Að frátöldum árunum 2020 til 2022 þegar kórónuveirufaraldurinn þarf að leita aftur til janúar 2016 til að finna lægri tölu. Þá voru þeir 78 þúsund. Árið 2018 var metár. Þá fóru tæplega 148 þúsund erlendra frá landinu.Mestu munar um fækkun Bandaríkjamanna. 24 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í janúar sem samsvarar ríflega fimmtungi allra brottfara. Í fyrra þegar þeir voru þeir 33 þúsund.Bretar vógu upp á móti. 21 þúsund Bretar fór úr landi og fjölgaði um tólf prósent frá í janúar í fyrra. Í þriðja sæti þjóða voru Kínverjar. Þeir voru níu þúsund og fækkaði um átta prósent frá sama mánuði í fyrra.Færri Íslendingar fóru utan í janúar en í fyrra og voru þeir 43 þúsund.Samtals fækkaði gestum um
Mörg þúsund færri frá Bandaríkjunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta