Mikið viðbragð var hjá lögreglu og slökkviliði á höfuðborgarsvæðinu fyrir hádegi þegar þeim barst tilkynning um að kajak hefði sést á hvoldi í Skerjafirði. Lögreglumenn hófu þegar leit með dróna og slökkviliðsmenn fóru af stað með bát til að geta brugðist við. Leitin leiddi þó í ljós að þarna var engan kajak á hvolfi að finna heldur lítinn hafís sem hafði rekið þangað inn. Var þá ljóst að ekki þyrfti að bjarga neinum úr sjávarháska. Björgunarsveitir voru einnig kallaðar út en afturkallaðar áður en þær komu á staðinn.Slökkviliðsmenn á æfingu í Kópavogshöfn fyrr í febrúar.Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins