Robert Fico forsætisráðherra Slóvakíu er kominn í hóp með Ungverjalandi og hótar Úkraínu aðgerðum nema opnað verði fyrir rennsli rússneskrar olíu í gegnum landið.Ungverjaland og Slóvakía hafa reitt sig á hráolíu frá Rússlandi, en flæðið um Druzhba-leiðsluna stöðvaðist í lok síðasta mánaðar. Stjórnvöld í ríkjunum, sem eru talin höll undir Vladimír Pútín Rússlandsforseta, saka Volodymyr Zelensky forseta og stórnvöld í Kænugarði um að loka viljandi fyrir flæðið, en Úkraínumenn segja að leiðslan hafi skaddast í loftárásum Rússa 27. janúar. Viðgerðir stæðu enn yfir.Fico sagði í samfélagsmiðlafærslu í gær að ef Zelensky sæi ekki til þess að opnað verði fyrir olíuna á ný myndi hann láta rafveitu slóvakíska ríkisins loka fyrir rafmagnstengingar til Úkraínu, sem hafa reynst vel í neyðartilfellum ef