Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bændur á dráttarvélum komu björgunarsveitum til aðstoðar

Gul viðvörun var á Suðurlandi í gær og skilyrðin urðu sérlega slæm undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum. Ökumenn lentu í vandræðum og björgunarsveitir voru kallaðar til.Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, var talsvert af lausum snjó undir Eyjafjöllum og skyggni verulega skert. Vegna þess hægðu ökumenn á sér eða jafnvel stoppuðu.„Og um leið og þeir stoppa þá fer snjó að draga í kringum bílana og það var það sem skapaði þessi vandræði fyrst og fremst.“Voru margir bílar þarna á ferðinni?„Þetta hafði áhrif á þónokkuð margt fólk já, ég hugsa að þarna hafi verið eitthvað á annað þúsund aðilar,“ segir Jón.Fyrsta útkall barst um hálf fimm. Þá voru kallaðar út Flugbjörgunarsveitin á Hellu, Dagrenning á Hvolsvelli, Bróðurhöndin undir Eyjafjöllum og Víkverji á Vík í Mýrdal.„
Bændur á dráttarvélum komu björgunarsveitum til aðstoðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta