Gul viðvörun hefur verið gefin út vegna norðaustanhríðar á Suðausturlandi. Búist er við skafrenningi, einkum undir Eyjafjöllum sem getur valdið umferðartruflunum. Búist er við því að vindhraði gæti farið upp í allt að 18 metra á sekúndu með rigningu eða snjókomu.Veðurstofa Íslands varar við hríðarveðri í Mýrdal, á Mýrdalssandi og undir Eyjafjöllum fram eftir morgni sem getur valdið samgönguerfiðleikum.Dálítil él á Austurlandi, en yfirleitt þurrt annars staðar og frost 0 til 6 stig.Að mestu þurrt norðaustantil, hlýnandi veður , hiti 2 til 7 stig síðdegis.