Í dag er spáð austan fimm til þrettán metrum á sekúndu en þrettán til tuttugu syðst. Gul viðvörun er í gildi til hádegis á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hvassviðris og hríðar. Alldjúp lægð fer austur fyrir sunnan land í dag. Henni fylgir hvöss austanátt við suðurströndina en kaldi eða strekkingur annars staðar.