Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Danskir hermenn fluttu veikan bandarískan kafbátsmann til Nuuk

Danskir hermenn sóttu skipverja með þyrlu um borð í bandarískan kafbát og komu honum undir læknishendur í Nuuk eftir að hann veiktist alvarlega.Danskur hermaður gengur brott frá stjórnstöð hersins í Nuuk.AP / Evgeniy MaloletkaFrá þessu var greint á Facbook síðu Arktisk kommando, sem stjórnar aðgerðum danska hersins á norðurslóðum. Hvorki hefur verið greint frá hvað amaði að manninum né á hvaða ferðalagi kafbáturinn var.Ljósmyndir á samfélagsmiðlum sýna kafbát dóla í hálfu kafi undan ströndinni við Nuuk. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir sjúkraskip á leið til Grænlands að sinna bágstöddum í samvinnu við erindrekann Jeff Landry. Hann birti gervigreindarmynd því tengda á samfélagsmiðlinum Truth Social,.
Danskir hermenn fluttu veikan bandarískan kafbátsmann til Nuuk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta