Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Einn gistir fangaklefa fyrir líkamsárás og annar sviptur réttindum fyrir hraðakstur

Maður gistir fangaklefa grunaður um líkamsárás í Hlíðahverfi í gærkvöld eða nótt að því er segir í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Tveir gistu fangageymslur lögreglu eftir nóttina.RÚV / Ragnar VisageAnnar var handtekinn eftir að hafa ölvaður ekið á ljósastaur í Múlahverfinu. Tveir ökumenn voru sviptir réttindum á staðnum, annar fyrir að aka á 92 kílómetra hraða í miðborginni þar sem hámarkshraði er 40 og hinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í Neðra-Breiðholti. Auk þessa höfðu lögreglumenn afskipti af þjófi í verslun í Hafnarfirði og liðsinntu ölvuðu fólki, meðal annars við að komast heim til sín.
Einn gistir fangaklefa fyrir líkamsárás og annar sviptur réttindum fyrir hraðakstur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta