Þetta byrjaði eins og útsending frá geimskoti, enda sést geimflaug greinilega í startholunum. Hún tekur á loft og geimfari er mættur á tunglið og dregur þar fána að húni. Það er ekki bandaríski fáninn heldur síbreytilegur, litskrúðugur fáni með þremur bókstöfum, M T V. Undir hljómar gítarriff, vísbending um það sem koma skal. Og svo fór í loftið fyrsta tónlistarmyndbandið af mörgum sem á eftir komu. Valið á því fyrsta var ekki tilviljun, Video Killed the Radio Star með The Buggles. Lagið og myndbandið var reyndar tveggja ára gamalt en þótti hæfa tilefninu.Sjónvarpsstöðin MTV hafði mikil áhrif á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn fyrir aldamót. Síðustu ár hefur verulega dregið úr umsvifum stöðvarinnar. Í Heimskviðum var rýnt í sögu MTV í tali og tónum.Þetta var á miðnætti 1. ágúst árið 1981 í