Útilokað er að senda mannaðan Artemis-leiðangur NASA í tíu daga ferð umhverfis tunglið 6. mars eins og til stóð. Jared Isaacson forstjóri stofnunarinnar greindi frá þessu í gær og sagði ástæðuna vandkvæði við að fylla skotflaugina af fljótandi helíum. Sú bilun, sem telst mjög alvarleg, greindist aðfaranótt laugardags.Á föstudagsmorgun leit út fyrir að öruggt væri að hefja ferðina innan fárra vikna enda virtist allur búnaður flaugarinnar í himnalagi eftir fimmtíu klukkustunda langar prófanir.Isaacson kvaðst því vel skilja vonbrigði fólks en áréttaði jafnframt að geimferðir væru tafsamt og erfitt verkefni. Hann rifjaði meðal annars upp að Gemini 8-leiðangrinum 1966 með Neil Armstrong innanborðs hefði lokið snemma vegna tæknivandkvæða.Þremur árum síðar, 20. júlí 1969, steig Armstrong á yfirbo