Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tyrknesk kvikmynd um pólítískar ofsóknir hlaut Gullbjörninn

Nokkrir verðlaunahafar á kvikmyndahátíðinni í Berlín töluðu máli Palestínumanna í þakkarræðum sínum eftir að leikstjórinn Wim Wenders forseti dómnefndar sagði við upphaf hátíðarinnar að kvikmyndargerðarmenn ættu að halda sig fjarri stjórnmálum.Þýsk-tyrkneska kvikmyndin Gelbe Briefe hlaut Gullbjörninn sem besta mynd ársins á kvikmyndahátíðinni í Berlín í gærkvöld. Ilker Catak leikstýrir myndinni sem fjallar um tyrknesk leikarahjón sæta ofsóknum vegna stjórnmálaskoðana sinna.Þrátt fyrir að eiga að gerast í Tyrklandi var Gelbe Briefe tekin upp í Þýskalandi til að sýna að ofsóknir geti átt sér stað hvarvetna. Aðalhlutverkin eru í höndum þeirra Özgü Namal og Tansu Biçer.Wim Wenders sagði Gelbe Briefe ógnvekjandi fyrirboða, svipmynd inn í nána framtíð sem gæti hugsanlega gerst í öðrum löndum.Kvi
Tyrknesk kvikmynd um pólítískar ofsóknir hlaut Gullbjörninn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta