Öflugar sprengingar skóku úkraínsku höfuðborgina Kyiv í nótt eftir að íbúar höfðu verið varaðir við yfirvofandi eldflaugaárás. Fréttamaður AFP í borginni kveðst hafa heyrt háværar sprengjudrunur kveða við laust fyrir klukkan fjögur í nótt að staðartíma.Borgaryfirvöld hvöttu almenning til að halda sig í skjóli uns hættan liði hjá og hvorki mynda né birta myndir af yfirstandandi hernaðaraðgerðum. Loftvarnarkerfum var beitt gegn drónum allt umhverfis Kyiv.Rússar hafa gert þungar árásir á höfuðborgina að næturlagi undanfarnar vikur með það markmið að eyðileggja orku- og hernaðarinnviði.Sjaldgæfara er að Rússar leggi til atlögu að borginni Lviv nærri landamærunum að Póllandi en lögreglukona lét lífið í sprengingu þar í nótt auk þess sem minnst fimmtán særðust. Yfirvöld segja árásina vera hryðju