Nokkur Arabaríki brugðust ókvæða við fullyrðingum Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, um að Ísraelsríki eigi með vísun í Biblíuna tilkall til víðfeðmra svæða í Mið-Austurlöndum.Huckabee er fyrrverandi baptistaprestur og ákafur stuðningsmaður Ísraels og lét þessi orð falla í hlaðvarpsþætti hjá hægrimanninum Tucker Carlson á föstudag. Huckabee sagði aðspurður sér finnast fínt að Ísrael tæki allt landsvæðið milli Nílar í Egyptalandi og Efrat í Sýrlandi og Írak líkt og fyrsta Mósebók virðist kveða á um.Þegar Carlson þrýsti frekar á Huckabee sagði hann Ísrael ekkert ætla að taka landið og að ummæli sín hefðu verið ýkjukennd. Amir Ohana, forseti ísraelska þingsins, fagnaði þeirri samstöðu sem Huckabee sýndi Ísrael í viðtalinu en sakaði Carlsson um að hagræða sannleikanum.Heimastjór