Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Öryggisþjónustan FSB álítur Telegram ógn við öryggi ríkisins

Auglýsingaskilti í Moskvu sem hvetur fólk til að ganga til liðs við launaðar hersveitir.EPA / MAXIM SHIPENKOVRússneska öryggisþjónustan FSB segir samskiptamiðilinn Telegram geta ógnað öryggi ríkisins. Milljónir Rússa nota miðilinn að staðaldri, þar á meðal hermenn á vígvöllum Úkraínu. Öryggisþjónustan segir notkun miðilsins iðulega hafa stefnt lífi hermanna í tvísýnu. Margir Rússar líta á Telegram sem mikilvægustu uppsprettu óháðra upplýsinga og óttast nú að notkun miðilsins verði bönnuð.
Öryggisþjónustan FSB álítur Telegram ógn við öryggi ríkisins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta