Donald Trump Bandaríkjaforseti brást fljótt við úrskurði Hæstaréttar um að verndartollar sem hann lagði á fjölda ríkja á síðasta ári væru ólöglegir.Forsetinn undirritaði tilskipun í gær um 10% toll á allan innflutning til Bandaríkjanna. Sá byggir á annarri heimild í lögum en þeirri sem var dæmd ólögleg. Síðdegis í dag hækkaði Trump tollana svo í 15%. Þessir tollar mega gilda mest í 150 daga og þingið þarf að samþykkja framlengingu.Ísak Einar Rúnarsson, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, segir vendingarnar slæmar fyrir alþjóðleg viðskipti.„Óvissa er alltaf slæm fyrir viðskipti, óvissa er alltaf slæm fyrir verðmætasköpun. Þannig að heilt yfir myndi ég segja að þetta séu slæmar fréttir fyrir alþjóðahagkerfið. Hvernig það á eftir að koma niður á einstaka löndum er svona að koma í ljós o