Tíðni berkla er lág á Íslandi. Til Landlæknis ber að tilkynna um berklaveiki, sem sagt þá sem veikjast – ekki þá sem greinast með berklasmit. Berklasmit þýðir að fólk hefur komist í snertingu við berklabakteríuna en ónæmiskerfið heldur henni í skefjum, fólk er því einkennalaust og getur ekki smitað aðra.„Það er bara lítið brot af fólki sem verður berklaveikt í kjölfar berklasmits, það er yfirleitt þá ef ónæmiskerfið er bælt af einhverjum ástæðum,“ segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir.„Þannig þetta er ekki áhyggjuefni, það er enginn faraldur í gangi hér af berklum. Það hafa verið víðtækari skimanir og meira notað af nýju prófi, sem er blóðprufa sem er næmari en húðprófið sem var mest notað áður. Þannig að það er líklega verið að greina aðeins fleiri, já,“ bætir hún við.Samkvæmt nýjustu töl