Verslunarkjarni hefur vaxið hratt austast á Selfossi undanfarin misseri og nýjasta verslunin við Larsenstræti er Álnó sem var áður Álnavörubúðin í Hveragerði. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, segir nálægðina við nýja Ölfusárbrú laða fyrirtæki að og heilmikil uppbygging sé fyrirhuguð báðum megin árinnar.„Já við finnum það að það er mjög mikill áhugi fyrirtækja að koma hérna á svæðið til okkar núna og það hefur áhrif jú að vegurinn er að færast og nýja brúin er að koma inn þannig að fyrirtækin eru að leitast eftir lóðum nálægt þjóðveginum.“ ÁLNÓ NÝJASTA VIÐBÓTIN Bragi segir stefna í að verslun og þjónusta við nýju brúna muni eflast verulega beggja megin Ölfusár á næstu árum. Verslunin Álnó, sem áður var Álnavörubúðin, opnaði í verslunarkjarnanum Austurgarði á dögunum. Hún starfaði í