Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þúsundir minntust hægri-öfgamanns í Lyon

Um 3.200 söfnuðust saman í frönsku borginni Lyon í dag til að minnast Quentin Deranque, öfga-hægrimanns sem var drepinn í síðustu viku. Sex hafa verið ákærðir fyrir manndráp og einn til viðbótar fyrir aðild að manndrápi.Þeir eru sakaðir um að hafa ráðist á hann eftir að til ryskinga kom milli hægri- og vinstrisinnaðra hópa á mótmælafundi þar sem Rima Hassan, vinstrisinnaður Evrópuþingmaður, ávarpaði þátttakendur.Spenna milli hópa í Lyon, sem eru á öndverðum meiði í stjórnmálum, hefur farið vaxandi að undanförnu.Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt til stillingar. Hann segist ætla að funda með ríkisstjórninni í komandi viku til að hrinda af stað ítarlegri rannsókn á öfgahópum með tengsl við stjórnmálaflokka.
Þúsundir minntust hægri-öfgamanns í Lyon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta