Tugir Úkraínumanna skiluðu inn umsögn við áform dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga sem miðast að því að koma í veg fyrir að Úkraínumenn, sem hafa fengið hæli hér á landi á grundvelli laga um fjöldaflótta, fái sjálfkrafa ótímabundið dvalarleyfi. Umsagnarfresti lauk fyrir helgi.Alls bárust 276 umsagnir og meirihluti þeirra er frá Úkraínumönnum sem komu hingað eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022. Sumir þeirra hafa aðeins verið hér í einhverja mánuði meðan aðrir í nokkur ár. > Ég hef hvergi að snúa aftur, ég er frá Mariupol. Borgin mín er hernumin. Þakka ykkur, Ísland, fyrir að veita mér hæli, vinnu og heiðskírt loft án stríðs. – Oleksandr Zubkov Flestir lýsa miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum. Sumir lýsa því hve ánægðir þeir eru á Íslandi og hvernig þeir