Mikill fjöldi landsmanna er á faraldsfæti, enda vetrarfrí í skólum víða um land. Margir stefna á að komast á skíði, ekki síst íbúar suðvesturhornsins þar sem skíðasvæðin í Bláfjöllum hafa ekkert verið opin að ráði fyrr en einmitt síðan í þessari viku.Straumurinn lá mikið til norður á land og er fjölmenni á Akureyri. Forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli sagði í fréttum fyrr í dag að þar hafi verið algjör metdagur. Flöskuhálsinn hafi einna helst verið á bílastæðum. Lögregla þurfti líka að stýra umferð upp í fjall. ERILL Á DALVÍK SÍÐUSTU DAGA En það eru fleiri möguleikar fyrir skíðaþyrsta á Norðurlandi því að á skíðasvæðinu á Böggvistaðafjalli á Dalvík var líka mikill erill.Hörður Finnbogason, umsjónarmaður svæðisins, segir daginn í dag með þeim stærri sem hann muni eftir.Er færið g