Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íslandsbanki og Skagi slíta samrunaviðræðum

Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga, sem á VÍS, Fossa og Íslensk verðbréf, hefur verið slitið. Þetta kemur fram í tilkynningum frá félögunum. Unnið hefur verið að samrunanum síðan í október. Að mati stjórnar Íslandsbanka „höfðu niðurstöður og greiningar úr ferlinu, þróun á markaðsvirði félaganna tveggja og væntar auknar eiginfjárkröfur Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds banka á tryggingafélagi leitt til þess að gera yrði breytingar á því gagngjaldi sem tilgreint var í skilmálaskjalinu til að gætt yrði að hagsmunum hluthafa Íslandsbanka.“Stjórn Skaga taldi ekki að tillaga Íslandsbanka endurspegli ekki virði Skaga í sameiginlegu félagi. Því hafi félögin sammælst um að slíta viðræðum.
Íslandsbanki og Skagi slíta samrunaviðræðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta