Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að hann myndi hækka verndartolla á allar innfluttar vörur til Bandaríkjanna úr 10%, eins og hann tilkynnti í gær, upp í 15%. Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi verndartolla, sem Trump lagði á hin ýmsu viðskiptaríki síðasta árið, ólögmæta í gær.Trump brást hart við úrskurðinum sem fól í sér að forsetanum væri ekki heimilt að leggja tolla á viðskiptaríki með vísun í ákvæði laga sem veita neyðarrétt til slíks. Hann undirritaði tilskipun um 10% toll á öll ríki heims í gærkvöld, sem byggir á grein í viðskiptalögum frá 1974 og enginn forseti hefur beitt áður.Ákvæðið heimilar forseta að setja allt að 15% toll á öll lönd til að taka á málum sem tengjast viðskiptahalla, sem megi þó aðeins gilda í 150 daga, nema þingið samþykki framlengingu. Tilskipunin ge