Paramount Skydance, Netflix, Warner Bros., Sony, Disney. Þetta eru ekki aðeins stærstu kvikmyndaframleiðslufyrirtæki í heiminum heldur eiga þau öll það sameiginlegt að hafa fordæmt nýtt gervigreindarlíkan ByteDance, kínversks eiganda TikTok.Gervigreindarlíkanið Seedance 2.0 var gefið út fyrr í mánuðinum en spunagreindin er notuð til að búa til myndbönd. Skömmu eftir útgáfuna fór að birtast mikill fjöldi myndskeiða sem unnin eru með forritinu og brjóta á höfundarrétti. Þetta er efni á borð við heimatilbúnar senur í Hringadróttinssögu Peters Jacksons og myndskeið af Tom Cruise og Brad Pitt í slag.Variety hefur fylgst með þróun málsins.Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna, Motion Picture Association (MPA), riðu á vaðið 12. febrúar og fóru fram á að ByteDance hætti að brjóta á höfundarrétti. Amazon