Flugvélamóðurskip úr bandaríska flotanum er komið að Íransströndum ásamt fylgdarskipum sínum. Það er partur af ógnunum Bandaríkjaforseta í garð klerkastjórnarinnar í Íran. Komi til átaka af einhverju tagi, þá er ljóst að þessi eina deild bandaríska flotans er langtum öflugri en sameinaður íranski flotinn og því mun vart koma til eiginlegrar sjóorrustu. Hún mun altént ekki skipta miklu máli – nema...