Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sinueldur á Kjalarnesi komst í heyrúllur – „Við höfðum smá áhyggjur“

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna sinuelds á landi Mela á Kjalarnesi. Eldurinn barst í heyrúllur og nokkuð bras var að slökkva hann alveg, segir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.„Lítil grafa á næsta bæ var fengin til að róta í þessu meðan við vorum að slökkva í þessu.“Búið er að ráða niðurlögum eldsins og unnið er að því að slökkva í glæðum.Var hætta á að eldurinn myndi breiðast út?„Við höfðum smá áhyggjur af því en við náðum nokkuð snemma á staðinn. Kjalnesingarnir voru reyndar á undan okkur. Þeir náðu að hefta útbreiðslu eldsins.“
Sinueldur á Kjalarnesi komst í heyrúllur – „Við höfðum smá áhyggjur“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta