Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Átök eftir mótmæli í Teheran

Fjöldi stúdenta í Íran kom saman við marga háskóla í höfuðborginni Teheran í dag og gerðu hróp að stjórnvöldum. Þeir lýstu yfir samstöðu við þá sem stjórnarliðar drápu fyrir rúmum mánuði þegar mótmælaaldan þar í landi reis sem hæst. AFP-fréttastofan segir frá þessu og hefur eftir fjölmiðlum þar í landi og miðlum Írana utanlands. Átök brutust víða út milli mótmælenda og stuðningsmanna stjórnvalda.Stjórnvöld segja 3000 manns hafa farist í átökunum sem hófust í desember en mannréttindasamtök segja nær lagi að um 7000 hafi verið drepin, langflest af öryggissveitum stjórnarinnar.Mikil spenna umlykur því klerkastjórnina bæði innanlands og utan, því Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýstir mjög á um að samið verði um kjarnorkuáætlun landsins og hefur ekki útlokað að beita hervaldi til að ná fram sk
Átök eftir mótmæli í Teheran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta