Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Metfjöldi í Hlíðarfjalli: Lögregla þurfti að stýra umferð

Metfjöldi er í Hlíðarfjalli í dag og hefur lögregla þurft að loka fyrir umferð vegna ásóknar. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins segir vetrarfrí grunnskólanema um allt land lykilástæðu fyrir þessum mikla fjölda. Bærinn sé stútfullur af fjölskyldum sem ætli að nýta sér fríið til að skella sér á skíði.Er brjálað að gera í fjallinu?„Það er bara stappað, við getum ekki tekið við fleirum eins og staðan er núna, fólk verður að bíða þangað til það fer að hægjast, kannski koma aftur um tvöleytið og ná að skíða til fimm.“Og eru bara raðir lengst niður í bæ?„Já það voru raðir alveg niður að Hálöndum og neðar, þannig að lögreglan ákvað að loka fyrir umferð á meðan staðan væri svona.“Hvað tekur fjallið marga?„Flöskuhálsinn er nú kannski ekki brekkurnar, flöskuhálsinn er frekar bílas
Metfjöldi í Hlíðarfjalli: Lögregla þurfti að stýra umferð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta