Rótin, félag um málefni fólks með fíknivanda, hefur sent áskorun til heilbrigðisráðherra um að falla frá komugjöldum í viðhaldsmeðferð við ópíóðafíkn hjá SÁÁ á Vogi.„Við erum að sjá og heyra að fólk er að detta út úr þessari meðferð út af því að það þarf að greiða komugjöld fyrir meðferðina,“ segir Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra Rótarinnar.„Við teljum að það sé afskaplega óheppilegt og ekki í samræmi við svona lágþröskulda þjónustu og skaðaminnkandi þjónustu,“ bætir Kristín við.Hún segir að fólk borgi 17 þúsund krónur fyrir komu og læknisviðtal.Önnur Evrópulönd, Noregur, Finnland og Bretland hafi minnkað eða fellt niður kostnað við meðferð við ópíóðafíkn og niðurstaðan sé að brotthvarf úr meðferðinni minnki.„Markmiðið hlýtur alltaf að vera að halda fólki í meðferðinni og gera allt