Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vinsældir Mette-Marit hríðfalla í kjölfar hneykslismála

Vinsældir norsku konungsfjölskyldunnar hafa hríðfallið og eru minni en nokkru sinni fyrr, samkvæmt könnun sem norska ríkisútvarpið birti í dag, á afmælisdegi Haralds konungs.60% segjast styðja konungsfjölskylduna sem er 10% minna en í janúar. Konungurinn sjálfur reyndist vinsælastur og gáfu svarendur honum að meðaltali 9,2 af tíu í einkunn þegar þeir voru spurðir um ágæti hvers og eins sem fulltrúa konungsfjölskyldunnar.Mette-Marit krónprinsessa fékk hins vegar aðeins tæplega fjóra í einkunn, sem er töluvert fall síðan í janúar, þegar meðaleinkunn hennar var 7,4.Mette-Marit hefur verið mikið til umfjöllunar að undanförnu, bæði vegna fyrri samskipta við bandaríska barnaníðinginn Jeffrey Epstein og réttarhalda yfir syni hennar sem sætir ákæru fyrir fjölda kynferðisbrota.
Vinsældir Mette-Marit hríðfalla í kjölfar hneykslismála

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta