Rafrænt forval VG hófst í gærmorgun. Fyrir hádegi laugardaginn 21. febrúar höfðu 28% kosið. Hreindís Ylva Garðarsdóttir sem situr í stjórn Vinstri grænna í Reykjavík segir að félögum í félagi VG í Reykjavík hafi fjölgað um á fjórða hundrað.Vinstri græn náðu inn einum borgarfulltrúa í síðustu borgarstjórnarkosningum, Líf Magneudóttur. Nú býður VG fram sameiginlegan lista í Reykjavík með Vori til vinstri sem oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, Sanna Magdalena Mörtudóttir, stofnaði. Sanna Magdalena verður í fyrsta sæti á listanum. Fulltrúar VG verða í öðru, þriðja og sjötta sæti. Samkvæmt reglum VG má ekki halla á konur á lista.Átta eru í framboði um þrjú efstu sætin: Auður Alfífa Ketilsdóttir, Finnur Ricart Andrason, Hlynur Már Ragnheiðarson, Líf Magneudóttir, Riitta Anne Maarit Kaipain