Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fór til Danmerkur til að drepa tvo menn því hann vantaði pening

Norskur maður var dæmdur í 13 ára fangelsi í Danmörku í gær fyrir tvær tilraunir til manndráps. Maðurinn var sakaður um að ferðast til Danmerkur til að reyna að drepa tvo menn gegn greiðslu á síðasta ári.Hinn 36 ára Dag-Ørjan Slåen játaði fyrir dómi. Hann sagðist ekki hafa vitað hver réði hann til ódæðisins en að honum hafi verið lofað jafnvirði rúmlega átta milljóna íslenskra króna fyrir. Ætluð skotmörk eru bæði með tengsl við dönsk glæpagengi, að því er danska ríkisútvarpið greinir frá.Fyrri tilraunin misheppnaðist því skotvopn sem hann hafði fengið afhent virkaði ekki sem skyldi en í þeirri seinni hæfði hann 22 ára mann í bringuna. Sá þurfti að gangast undir aðgerð, hlaut mænuskaða og er lamaður fyrir neðan mitti.Slåen sagði í dómsal að hann vissi ekki hver hefði ráðið hann né hvers veg
Fór til Danmerkur til að drepa tvo menn því hann vantaði pening

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta