Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist skilja óánægju fólks sem þarf að greiða fasteignagjöld af húsum sem það býr ekki í. Undanþága Grindavíkur frá innheimtu fasteignagjalda vegna jarðhræringa verður ekki framlengd.„Við óskuðum eftir því árin 2024 og 2025 að fá undanþágu fyrir því að leggja á fasteignagjöld en nú er staðan sú að okkur ber í rauninni að leggja á gjöld,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur.„Okkur var í rauninni bara gert ljóst þegar við sóttum um árið 2025 að þetta yrði ekki framlengt.“Bæjaryfirvöld í Grindavík hafi lækkað fasteignagjöld til að létta byrðar Grindvíkinga, ekki síst þeirra sem þurfa að greiða af eign sem þau búa ekki í, úr 0,3% í 0.25%.Ásrún segir að viðbrögð Grindvíkinga hafi verið misjöfn. Sumir fagni álagninu fasteignagjal