Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Grafhýsi talið varpa ljósi á líf frumbyggja Mið- og Suður-Ameríku

Yfir þúsund ára gamalt grafhýsi fannst nýlega við fornleifauppgröft í Panama, sem hafði að geyma líkamsleifar ásamt gull- og leirmunum.Uppgötvunin var gerð í El Cano í Nata-héraði þar sem fornleifafræðingar hafa verið að störfum um tveggja áratuga skeið og fundið menjar frá því fyrir landnám Spánverja í Mið- og Suður-Ameríku. Fundurinn er talinn varpa enn frekara ljósi á líf fólks á þeim tíma.Á líkinu voru tvö armbönd, eyrnalokkar og skartgripir með myndum af leðurblökum og krókódílum. Fornleifafræðingurinn Julia Mayo segir í samtali við AFP-fréttaveituna að gullið og skreytingar leirmunanna bendi til að háttsettur einstaklingur hafi verið lagður þarna til hinstu hvílu milli áranna 800 og 1000.„Sá sem átti gull hafði æðstu félagslegu stöðuna í þessu samfélagi sem lifði í miðhéruðum Panama
Grafhýsi talið varpa ljósi á líf frumbyggja Mið- og Suður-Ameríku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta