Frasinn „tími er peningar“ er flestum kunnugur. Við notum hann í daglegu tali til að leggja áherslu á skilvirkni eða til að réttlæta hraðann í nútímasamfélagi. Flestir eigna bandaríska stjórnmálamanninum og uppfinningamanninum Benjamin Franklin þessi orð. Hann varaði við því að iðjuleysi væri ekki bara sóun heldur tapaður tekjumöguleiki.