Djúp lægð suðvestur í hafi þokast norðaustur og veldur hægt vaxandi austanátt í dag. Búist er við þurru og björtu veðri en dálitlum éljum austanlands. Austan kaldi síðdegis og skýjað með köflum en allhvasst eða hvasst syðst og stöku él þar.Í nótt komst frost niður í 10 til 15 stig og áfram verður kalt í veðri í dag. Dægursveifla hitans er hins vegar orðin það mikil að hiti nær sums staðar að skríða yfir frostmark sunnan heiða.Búist er við dálítilli slyddu eða snjókomu sunnanlands á morgun og 0 til 6 stiga frosti.Forst komst niður í 10 til 15 stig í nótt.RÚV / Ragnar Visage