Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður nýtur sín best í Napólí á Ítalíu. Hann er einhleypur en segir að hann verði aldrei einmana. Börnin hans eru númer eitt, tvö og þrjú og hann er ekki viðkvæmur fyrir gagnrýni eða slúðri. Hann var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 þar sem hann leit yfir farinn veg.Vilhjálmur er þekktur í samfélaginu og á það til að vera á milli tannanna á fólki. Hann hefur áður sagt í viðtali að honum sé sama hvað fólki finnist um sig. „Ég held það sé kominn áratugur eða tveir síðan ég sagði það og það á enn þá vel við,“ segir hann.Hann hafi fundið fyrst fyrir því í Verslunarskólanum, og síðar í lagadeildinni og út í lífið, að það hefði ekkert upp á sig að velta sér upp úr áliti annarra. > Ef ég ætlaði að velta fyrir mér hvað