Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Handtekinn í annarlegu ástandi fyrir að bakka ítrekað á hús

Ökumaður var handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur eftir að tilkynnt var að hann hefði ítrekað bakkað bíl sínum á hús.Lögreglubíll í Aðalstræti. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már EiðssonHann reyndist í mjög annarlegu ástandi að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og því vistaður í klefa. Lögreglan var kölluð til vegna slagsmála fyrir utan skemmtistað í miðborginni.Þar var einnig maður handtekinn fyrir að brjóta rúðu í bifreið og annar fyrir akstur eftir göngugötu auk þess sem sá reyndist ökuréttindalaus. Mjög ölvaður maður var handtekinn í úthverfi þar sem hann gekk um og skemmdi farartæki.
Handtekinn í annarlegu ástandi fyrir að bakka ítrekað á hús

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta