Fulltrúi heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna skaut rúmlega tvítugan ríkisborgara til bana í Texas í mars á síðasta ári. CNN greinir frá.Ruben Ray Martinez var 23 ára þegar hann var skotinn til bana.AP/Rachel Reyes / UncreditedNýútgefin skýrsla sýnir að Ruben Ray Martinez gæti hafa verið fyrstur af sex bandarískum ríkisborgurum sem drepnir hafa verið í tengslum við harðar aðgerðir Bandaríkjaforseta gegn innflytjendum í landinu. Martinez er sagður hafa verið stöðvaður við umferðareftirlit og heimavarnaráðuneytið staðhæfði í gær að hann hefði reynt að aka á lögreglumenn.